Við færum þér kúnna.
Læk borga ekki launin. Við byggjum vélina sem breytir áhuga í fyrirspurnir: Meta herferðir, síðu sem selur og póstlista sem heldur áfram að vinna eftir að við afhendum hann.
Úr herferðum sem við höfum keyrt
Á þetta við þig?
Þetta passar þér ef
- Þú selur eitthvað sem kostar meira en nokkur þúsund krónur.
- Einhver hjá þér getur svarað fyrirspurn innan sólarhrings.
- Þú ert til í að láta þetta ganga í þrjá mánuði áður en þú dæmir.
- Þú vilt frekar tuttugu fyrirspurnir en tvö þúsund fylgjendur.
Þetta passar ekki ef
- Það sem þig langar raunverulega í er útbreiðsla og fylgjendur.
- Enginn hefur tíma til að hringja til baka.
- Þú þarft árangur í þessari viku.
- Þú vilt bara borga þegar sala klárast. Við seljum fyrirspurnir, ekki sölur.
Hvernig þetta virkar
Við finnum rétta fólkið
Meta herferðir á Facebook og Instagram, miðaðar á svæði, áhuga og hegðun, svo peningurinn fari í fólkið sem gæti raunverulega keypt.
Við byggjum síðuna sem selur
Ein síða með formi og mælingum. Allt sem gesturinn þarf til að ákveða sig og ekkert sem truflar.
Þú færð fyrirspurnirnar, við mælum
Fyrirspurnir detta beint í pósthólfið þitt um leið og þær berast, og þú sérð hvað hver og ein kostaði.
Við setjum upp póstlistann
Flestir kaupa ekki í fyrsta skipti sem þeir heyra í þér. Við setjum upp listann, tengjum formið og skrifum sjálfvirku svörin, og afhendum ykkur svo allt saman. Eftir það er listinn ykkar og hann heldur áfram að vinna án okkar.
Hvað þú færð
- Meta herferðir, settar upp og keyrðar
- Landingarsíða byggð til að breyta áhuga í fyrirspurn
- Efnið ykkar sett upp og prófað í nokkrum útfærslum
- Lead-form sem dettur beint í pósthólfið þitt
- Mælingar rétt uppsettar, svo þú sérð hvaðan fyrirspurnirnar koma
- Póstlisti, uppsettur og tengdur við formið
- Sjálfvirk svör skrifuð, prófuð og afhent
- Mánaðarleg skýrsla á mannamáli
Myndefnið kemur annaðhvort frá ykkur eða við komum og tökum það upp. Tökur á staðnum eru verðlagðar sérstaklega og eru ekki innifaldar hér að ofan.
Tölur úr alvöru herferðum
Þetta eru niðurstöður úr Meta herferðum sem við höfum keyrt fyrir viðskiptavini. Ekki dæmi, ekki áætlanir.
201 fyrirspurn á 205 kr. stykkið
- Fyrirspurnir 201
- Kostnaður á fyrirspurn 205 kr.
- Birtingar 97.073
81 fyrirspurn úr tveimur herferðum
- Fyrirspurnir 81
- Kostnaður á fyrirspurn 718 kr.
- Birtingar 28.843
Kostnaður á fyrirspurn ræðst af markaði, tilboði og verði, svo þínar tölur verða aðrar. Það sem breytist ekki er að þú sérð nákvæmlega hvað hver fyrirspurn kostaði.
Algengar spurningar
Hver borgar auglýsingarnar?
Þú, beint á þinn eigin Meta reikning. Þannig áttu reikninginn, gögnin og söguna sjálfur og sérð hverja krónu sem fer út. Við keyrum aldrei auglýsingafé í gegnum okkur.
Hvað tekur langan tíma að sjá árangur?
Fyrstu fyrirspurnirnar koma oftast á fyrstu dögunum, en Meta þarf tvær til þrjár vikur til að læra hverjum borgar sig að sýna auglýsinguna, og kostnaðurinn á hverja fyrirspurn lækkar á meðan. Dæmdu þetta eftir þrjá mánuði, ekki eftir einn.
Hvað telst gild fyrirspurn?
Nafn, virkt símanúmer eða netfang, innan þess svæðis sem samið var um, og ekki einhver sem er þegar í kerfinu hjá þér. Hún telur hvort sem þér tókst að ná í manneskjuna eða ekki. Við seljum fyrirspurnir, ekki sölur. Að loka þeim er þín vinna.
Hver útvegar myndefnið?
Annaðhvort þið, ef þið eigið efni sem við getum notað, eða við komum og tökum það upp. Tökur eru verðlagðar sérstaklega svo þið ráðið hvort það borgar sig. Gott efni lækkar kostnaðinn á hverja fyrirspurn yfirleitt meira en nokkuð annað sem við getum breytt.
Hvað er Meta pixel og kostar hann eitthvað?
Þetta er lítill kóðabútur frá Meta sem situr á síðunni og segir Meta hvað gerðist eftir smellinn, hver kom inn og hver fyllti út formið. Án hans veit Meta ekki hvaða auglýsing bjó til fyrirspurn og getur ekki lært af því. Hann kostar ekkert. Meta gefur hann og við setjum hann upp þegar við byggjum síðuna.
Sjáið þið um póstlistann áfram?
Nei. Við setjum hann upp, tengjum hann við formið og skrifum sjálfvirku svörin, svo afhendum við hann. Eftir það er listinn ykkar að reka og þið eigið netföngin á honum. Ef þið viljið frekar að við höldum áfram að skrifa í hann er það sérstakt samkomulag.
Þarf ég að eiga vefsíðu fyrir?
Nei. Við byggjum landingarsíðuna sem hluta af þessu, og hún skilar oft betur en venjuleg vefsíða því hún hefur eitt hlutverk og einn takka.
Hvað ef þetta virkar ekki?
Þú sérð hvað hver fyrirspurn kostar frá fyrsta degi, svo enginn þarf að giska. Ef tölurnar ganga ekki upp hjá þér segjum við þér það frekar en að halda áfram að eyða peningunum þínum.
Hvað kostar þetta?
Það fer eftir því hvað er þegar til staðar og hvað við þurfum að byggja. Segðu okkur hvað þú selur og hverja þú vilt ná í, og við komum til baka með plan og verð innan sólarhrings. Auglýsingakostnaðurinn er aðskilinn og alltaf greiddur af þér.