Gervigreind

Við gerum fyrirtækið þitt læsilegt fyrir gervigreind.

Fólk er farið að spyrja ChatGPT hvert það eigi að fara og hvað það eigi að kaupa. Við setjum upplýsingarnar þínar þannig fram að vélarnar finni þær, og mælum hvort það breyti einhverju.

Hvað þú færð

  • Svörin fyrir og eftir Við spyrjum ChatGPT, Claude, Perplexity og Gemini tíu spurninga um þinn bransa og skrifum svörin niður. Við gerum það aftur eftir 60 daga.
  • Umferð frá vélunum Mæling sett upp svo þú sjáir hve margir koma til þín frá ChatGPT og Perplexity.
  • Skipulögð gögn Opnunartími, staðsetning, þjónusta og verð sett upp þannig að vélar lesi þau rétt.
  • Aðgangur fyrir vélarnar GPTBot, ClaudeBot, PerplexityBot og Google-Extended fá að lesa síðuna.
  • Staðreyndir sem texti Verð og tímar sem texti, ekki myndir. Sömu upplýsingar á Google Business, Facebook og vefnum.
  • Svör á síðunni Spurningarnar sem kúnnar þínir spyrja, svarað á mannamáli.

Við getum ekki lofað því að þú birtist í svari. Því ræður enginn. Þú færð mælinguna og sérð sjálfur hvort eitthvað breyttist.

Algengar spurningar

Hvernig veit ég hvort það virkaði?

Þú færð svörin sem við skrifuðum niður fyrir og eftir. Og þú sérð í mælingunni hve margir koma frá ChatGPT og Perplexity.

Getið þið lofað því að ég birtist?

Nei. Svörin eru ólík eftir vélinni, útgáfunni og landinu. Við getum séð til þess að upplýsingarnar séu til og réttar.

Er þetta sama og SEO?

Ekki alveg. Vélarnar lesa síður og skrifa svar, og þær vitna líka í það sem aðrir skrifa um þig. Þannig að það hjálpar að vera nefndur annars staðar.

Hvað kostar þetta?

Fast verð. Sendu okkur vefslóðina og við sendum þér verð innan sólarhrings.

Sendu okkur slóðina þína

Við svörum með plani og verði innan sólarhrings.

Hvað gerist í dag?