Sjálfvirkni

Við tökum handavinnuna af þér.

Ef þú gerir eitthvað eins í hverri viku er yfirleitt hægt að láta það gerast af sjálfu sér. Við byggjum það og höldum því gangandi.

Dæmi um hvað við leysum

Ef þitt er ekki hér skaltu samt spyrja.

  • Eftirfylgni eftir bókun Staðfesting, áminning og póstur daginn eftir með hlekk á skráningu.
  • Svar innan mínútu Fyrirspurn kemur af Meta. Kúnninn fær svar og þú færð SMS.
  • Umsagnir Beiðni um Google umsögn eftir þjónustu. Óánægðir fara á þig fyrst.
  • Skráningar á einn stað Form fara í gagnagrunn og póstlista í staðinn fyrir pósthólf.
  • Skýrslur sem búa sig til Tölur settar í eina skýrslu fyrsta hvern mánuð.
  • Pósthólfið Skilaboð flokkast, algengu spurningunum er svarað, hitt kemur til þín.

Algengar spurningar

Hvað kostar þetta?

Uppsetning einu sinni og svo mánaðargjald. Segðu okkur hvað þú gerir í höndunum og við sendum þér verð innan sólarhrings.

Af hverju mánaðargjald?

Af því að þetta hættir að virka öðru hvoru. Lykilorði er breytt eða tenging rennur út. Við athugum það í hverjum mánuði svo það stoppi ekki þegjandi.

Hvaða kerfi er hægt að tengja?

Meta, Google, Shopify, Mailchimp og flest stóru kerfin. Íslensk bókunar- og bókhaldskerfi fara eftir því hvort þau séu með API. Við athugum það áður en við lofum einhverju.

Hver á þetta?

Þú. Þetta keyrir á þínum eigin reikningi og póstarnir koma frá þínu netfangi. Ef þú hættir hjá okkur heldur það áfram að virka.

Segðu okkur hvað þú gerir í höndunum

Við svörum með plani og verði innan sólarhrings.

Hvað gerist í dag?