Í prufu. Við opnum fyrir nýja notendur í hollum.
Allt sem þú heldur utan um á einum stað.
Vinnusvæði á netinu fyrir verkin, samstarfsaðilana, póstinn og tekjurnar. Prófaðu sýnidæmið strax, án aðgangs.
Hvað lýsir þér best?
Veldu og við setjum saman Glerhús fyrir það sem þú gerir.
Svona virkar Glerhúsið.
-
01
Þú setur það saman
Þú velur það sem þú þarft. Kerfið er tilbúið á nokkrum mínútum og þú getur prófað það strax.
-
02
Allt kemur á einn stað
Verkin, pósturinn, samstarfsaðilarnir, tölurnar af samfélagsmiðlunum og tekjurnar.
-
03
Fólkið þitt sér stöðuna
Starfsfólkið, viðskiptavinir eða samstarfsaðilar skrá sig inn og sjá það sem þau eiga að sjá.
-
04
Kerfið sér um restina
Þegar verki lýkur fær sá sem bað um það póst. Mánaðarskýrslan af samfélagsmiðlunum verður til sjálf.
Það sem er í kerfinu.
Þú velur hvað er með. Smelltu á atriði til að sjá það í notkun.
- Verk og undirverk
- Verk úr tölvupósti
- Tölvupóstur í kerfinu
- Póstur þegar verki lýkur
- Tillögur og samþykki
- Tölfræði samfélagsmiðla
- Yfirlit yfir tekjurnar
- Þitt merki
- App í símann
Í smíðum: styrktar- og samstarfsaðilar, keppnir og viðburðir, efnisplan og samþykki, beiðnir til stofunnar, tilboð og myndir úr verkinu.
Sjá allt í notkun →Tengdu Glerhúsið við það sem þú notar nú þegar.
Gmail
Google Calendar
Instagram
Facebook
TikTok
- Á leiðinni:
Payday
DKClaude
ChatGPT
- Fleiri tengingar
Viltu eitthvað meira? Biddu um það og við bætum því við.
Sjá allar tengingar →Ertu með stofu? Gerstu samstarfsstofa.
Viðskiptavinirnir ykkar koma inn í gegnum ykkur og sjá ykkar merki og liti í kerfinu. Starfsfólk Tveir skoðar ekki viðskiptavini ykkar eða gögnin þeirra, nema þið biðjið um aðstoð.
Spurningar.
Get ég byrjað strax?
Glerhúsið er í prufu og við opnum fyrir nýja notendur í hollum. Sæktu um aðgang og við heyrum í þér. Sýnidæmið getur þú prófað strax í vafranum, án aðgangs og án korts.
Fær starfsfólkið mitt aðgang?
Já. Hver og einn fær sinn eigin aðgang og sér verkin sín. Þú ræður hver sér hvað.
Get ég tengt minn eigin póst?
Já, Gmail. Við setjum tenginguna upp með þér, hvenær sem er, líka seinna. Tenging með einum smelli kemur þegar Google hefur farið yfir kerfið. Sama gildir um samfélagsmiðlana og dagatalið.
Hver á gögnin?
Þú. Glerhúsið er í eigu Tveir ehf. Starfsfólk Tveir skoðar ekki gögn annarra stofa eða viðskiptavina þeirra, nema beðið sé um aðstoð.
Þarf ég að kunna eitthvað á tölvur?
Nei. Það virkar í vafranum og fer á heimaskjáinn í símanum eins og app.
Hvað þýðir Í smíðum?
Hlutar sem við erum að smíða núna. Þú getur valið þá strax og færð þá um leið og þeir eru tilbúnir.
Sæktu um aðgang.
Glerhúsið er í prufu og við opnum fyrir nýja notendur í hollum. Sæktu um og við heyrum í þér. Við sýnum þér kerfið, setjum það upp eftir því sem þú gerir og svörum því sem þú vilt vita.
Viltu skoða fyrst? Prófaðu sýnidæmið, það þarf hvorki aðgang né kort.