Fara í efni

Persónuvernd.

Svona förum við með gögnin þín í Glerhúsinu. Síðast uppfært 20. nóvember 2026.

Hver ber ábyrgð

Glerhúsið er í eigu Tveir ehf., Reykjavík. Spurningar um persónuvernd sendir þú á tveir@tveir.is.

Hvaða gögn við geymum

Til hvers við notum þau

Bara til að veita þér þjónustuna: að sýna þér og þeim sem þú vinnur með verkin, póstinn og tölurnar, og að senda pósta sem þú biður um. Við seljum aldrei gögn, notum þau ekki í auglýsingar og notum þau ekki til að þjálfa gervigreind.

Gögn frá Google

Ef þú tengir Gmail eða Google dagatal les Glerhúsið bara það sem þarf fyrir þann hluta sem þú valdir og sendir bara pósta sem þú biður um. Notkun Glerhússins á gögnum frá Google API og flutningur þeirra fylgir Google API Services User Data Policy, þar með talið kröfunum um takmarkaða notkun (Limited Use). Starfsfólk les ekki póstinn þinn nema þú biðjir um aðstoð og samþykkir það, eða lög krefjist þess.

Hver sér hvað

Þú stjórnar því hver sér hvað. Viðskiptavinir, styrktaraðilar og stofan þín sjá bara það sem þú deilir með þeim. Ef þú vinnur með samstarfsstofu sér hún bara verkin og beiðnirnar sem þú sendir henni. Starfsfólk Tveir skoðar ekki gögn annarra stofa eða viðskiptavina þeirra, nema þú biðjir um aðstoð.

Hvar gögnin eru geymd

Gögnin eru geymd hjá Supabase í gagnaveri innan Evrópska efnahagssvæðisins (Írlandi). Vefurinn er hýstur hjá Vercel. Form á vefnum fara í gegnum Formspree. Tölvupóstur og dagatal fara í gegnum Google. Þessir aðilar vinna bara með gögnin fyrir okkar hönd.

Hve lengi

Á meðan aðgangurinn þinn er virkur. Þegar þú hættir eyðum við gögnunum innan 30 daga, nema lög krefjist þess að þau séu geymd lengur. Þú getur aftengt Gmail og samfélagsmiðla hvenær sem er í Stillingum, og þá hættum við að sækja gögn þaðan.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá afrit af gögnunum þínum, láta leiðrétta þau, láta eyða þeim og fá þau afhent til að flytja annað. Sendu beiðni á tveir@tveir.is. Ef þér finnst við ekki fara rétt með gögnin getur þú kvartað til Persónuverndar.

Vafrinn

Vefurinn notar ekki rakningarkökur. Sýnidæmið í Settu saman geymir valið þitt í vafranum þínum svo það haldist á milli síðna.

In English

Glerhúsið is owned by Tveir ehf., Reykjavík, Iceland. We use your data only to provide the service. We never sell it, use it for advertising or use it to train AI models. If you connect Gmail or Google Calendar, Glerhúsið only accesses what the feature you chose needs and only sends emails you ask it to send. Glerhúsið's use and transfer of information received from Google APIs to any other app will adhere to the Google API Services User Data Policy, including the Limited Use requirements. Data is stored with Supabase in the EEA (Ireland). You can disconnect Google at any time and ask us to export or delete your data at tveir@tveir.is.