Fara í efni

Svona virkar Glerhúsið.

Hér sést hver hluti kerfisins í notkun. Þú velur það sem þú þarft og við setjum það upp.

01

Verk og undirverk

Hvert verkefni skiptist í undirverk. Hvert undirverk hefur skiladag, ábyrgð og forgang, og skrárnar fylgja með. Allir sjá hver gerir hvað og hvenær.

  • Skiladagar og forgangur
  • Ábyrgð á hverju undirverki
  • Skrár og hlekkir á verkinu
02

Verk úr tölvupósti

Sendið póst á verk-netfangið og hann verður að verki. Ef pósturinn er listi verður hver lína að sínu verki, tilbúin til að úthluta.

  • Eitt netfang fyrir allt teymið
  • Listi verður að mörgum verkum
  • Pósturinn fylgir verkinu
03

Tölvupóstur í kerfinu

Sendið og svarið viðskiptavinum beint úr verkinu. Öll samskiptin vistast á verkinu, svo ekkert týnist í pósthólfinu og allir sjá söguna.

  • Póstur sendur úr verkinu
  • Svörin koma inn á sama stað
  • Sagan geymd á verkinu
04

Póstur þegar verki lýkur

Þegar verk er merkt lokið fær sá sem bað um verkið hannaðan póst í þínu nafni, með hnappi sem opnar stöðuna á verkinu.

  • Sendist sjálfkrafa
  • Í þínu nafni og með þínu merki
  • Hnappur beint á stöðuna
05

Tillögur og samþykki

Sendið viðskiptavininum tillögu að nýju verkefni með verði. Hann samþykkir hana í kerfinu og verkefnið fer beint af stað.

  • Verðið skráð á tillöguna
  • Samþykkt með einum smelli
  • Verkefnið verður til strax
06

Tölfræði samfélagsmiðla

Áhorf og fylgjendur frá Instagram og Facebook, dag fyrir dag. Um hver mánaðamót verður til skýrsla sem þú getur sent viðskiptavini eða samstarfsaðila.

  • Instagram og Facebook hlið við hlið
  • Dag fyrir dag
  • Mánaðarskýrsla sjálfkrafa
07

Yfirlit yfir tekjurnar

Samningar, aukaverk og það sem er lokið en órukkað, á einum stað. Tenging við Payday og DK er í smíðum: þá fara lokin verk beint yfir og reikningurinn verður til þar.

  • Samningar og aukaverk
  • Sjáið hvað er órukkað
  • Payday og DK Í smíðum
08

Þitt merki

Þeir sem skrá sig inn sjá þitt merki og þína liti. Kerfið lítur út eins og þitt eigið.

  • Þitt merki efst
  • Þínir litir á öllu
  • Þitt nafn á póstunum
09

App í símann

Glerhúsið fer á heimaskjáinn úr vafranum og opnast eins og app. Ekkert að sækja í App Store.

  • Beint úr vafranum
  • Opnast eins og app
  • Virkar líka í tölvunni

Viltu sjá það með þínum gögnum?

Við sýnum þér kerfið á 15 mínútum og setjum það saman eftir þínum þörfum. Styrktar- og samstarfsaðilar, keppnir, efnisplan og beiðnir til stofunnar eru í smíðum og bætast við.