Fara í efni

Skilmálar.

Skilmálar fyrir notkun Glerhússins. Síðast uppfært 20. nóvember 2026.

Þjónustan

Glerhúsið er vinnusvæði á netinu frá Tveir ehf. Þar heldur þú utan um verk, póst, samstarfsaðila, efni, tölur af samfélagsmiðlum og tekjur. Hlutar sem eru merktir Í smíðum eru í þróun og bætast við þegar þeir eru tilbúnir.

Aðgangurinn

Þú berð ábyrgð á aðganginum þínum og því sem er gert í honum. Gefðu ekki öðrum lykilorðið þitt. Bjóddu þeim frekar inn með eigin aðgang.

Áskrift

Verð og kjör færðu þegar þú færð aðgang. Áskriftin er greidd mánaðarlega og má segja upp með mánaðar fyrirvara.

Gögnin þín

Þú átt gögnin sem þú setur inn. Við förum með þau eins og lýst er í persónuverndarstefnunni. Þegar þú hættir getur þú fengið gögnin þín afhent.

Notkun

Ekki nota Glerhúsið til að senda ruslpóst, brjóta lög eða réttindi annarra. Við megum loka aðgangi sem er notaður þannig.

Ábyrgð

Við gerum okkar besta til að Glerhúsið virki alltaf og gögnin séu örugg, en getum ekki lofað að það verði aldrei truflun. Tveir ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni sem hlýst af notkun þjónustunnar.

Breytingar

Ef við breytum skilmálunum látum við þig vita með pósti að minnsta kosti 30 dögum áður en breytingin tekur gildi.

Lög

Um skilmálana gilda íslensk lög. Spurningar sendir þú á tveir@tveir.is.