Við sjáum um efnið fyrir þig.
Flestir vita að þeir eiga að birta eitthvað en komast aldrei í það. Við mætum, tökum upp og skilum efni sem er tilbúið.
Hvað er innifalið
Við setjum saman pakka eftir því hvað þú þarft mikið.
- Tökudagur Við komum til þín og tökum upp efni fyrir næstu vikur í einni ferð.
- Klipping Stutt myndbönd sniðin fyrir Reels, TikTok og Stories.
- Færslur Myndir og texti tilbúið til birtingar, ekki bara hráefni.
- Birting Við setjum inn á réttum tímum ef þú vilt sleppa því sjálfur.
- Hráefnið Þú færð allt sem var tekið upp, líka það sem fór ekki í birtingu.
- Yfirlit í lok mánaðar Hvað gekk vel, hvað gekk illa og hvað við gerum næst.
Algengar spurningar
Hvað kostar þetta?
Fer eftir hversu oft við mætum og hversu mikið efni þú vilt í hverjum mánuði. Segðu okkur hvað þú ert með í huga og við sendum verð innan sólarhrings.
Hvað þarf ég að gera?
Mæta á tökudaginn og segja okkur hvað er að gerast hjá þér. Við sjáum um hitt.
Hver á efnið?
Þú. Þú færð allar skrárnar og mátt nota þær hvar sem er, líka eftir að samstarfinu lýkur.
Hvað ef ég vil birta sjálfur?
Þá sendum við þér tilbúið efni og þú ræður hvenær það fer inn.