Fólkið sem keypti af þér einu sinni.
Þú átt líklega lista af netföngum sem enginn hefur sent á. Við setjum upp kerfið og póstana og afhendum þér það tilbúið.
Hvað er innifalið
Við setjum upp og afhendum. Efnið sjálft kemur frá ykkur eða við gerum tilboð í það sérstaklega.
- Póstlistinn settur upp Við veljum kerfið og flytjum inn netföngin sem þú átt nú þegar.
- Skráningarform Á vefinn þinn svo listinn haldi áfram að stækka án þess að þú gerir neitt.
- Sniðmát Póstar í alvöru söluformati, ekki bara fréttabréf með mynd efst.
- Sjálfvirk röð Þeir sem skrá sig fá nokkra pósta í réttri röð án þess að þú sendir þá.
- Mælingar Hversu margir opna, hversu margir smella og hvað skilar sölu.
- Afhending Við förum yfir kerfið með ykkur svo þið getið sent sjálf eftir það.
Algengar spurningar
Hvað kostar þetta?
Uppsetning einu sinni. Kerfið sjálft er mánaðargjald beint til þjónustuaðilans og er oft ókeypis til að byrja með.
Hver skrifar póstana?
Við setjum upp sniðmátin og fyrstu póstana. Eftir það sendið þið sjálf, eða við gerum tilboð í að sjá um það áfram.
Má ég senda á alla sem ég á netfang hjá?
Nei. Fólk þarf að hafa samþykkt það eða verið í viðskiptum við þig. Við förum yfir listann með þér áður en nokkuð er sent.
Hvaða kerfi notið þið?
Oftast Mailchimp eða Klaviyo. Við veljum eftir því hvað þú selur og hversu stór listinn er.